JESUS ARMY
JESUS CENTRES
MULTIPLY NETWORK
CHRISTIAN COMMUNITY
FACEBOOK
FLICKR PHOTOS
FOLLOW ON TWITTER
THE MJA BLOG
JESUS ARMY MULTILINGUAL ONLINE BIBLE
Icelandic

Choose a Bible
Select book or range
Type your search text here

Ignore case
Highlight
Exact phrase Ignore Word Order Any words
Chapter

Icelandic, Malakí 1 (Malachi 1)

1   Spádómur. Orð Drottins til Ísraels fyrir munn Malakí.

2   ,,Ég elska yður,`` segir Drottinn. Og ef þér spyrjið: ,,Með hverju hefir þú sýnt á oss kærleika þinn?`` þá svarar Drottinn: ,,Var ekki Esaú bróðir Jakobs? En ég elskaði Jakob

3   og hafði óbeit á Esaú, svo að ég gjörði fjallbyggðir hans að auðn og fékk eyðimerkursjakölunum arfleifð hans til eignar.``

4   Ef Edómítar segja: ,,Vér höfum að vísu orðið fyrir eyðingu, en vér munum byggja upp aftur rofin!`` þá segir Drottinn allsherjar svo: ,,Byggi þeir, en ég mun rífa niður, svo að menn munu kalla þá Glæpaland og Lýðinn sem Drottinn er eilíflega reiður.``

5   Þér munuð sjá það með eigin augum og þér munuð segja: ,,Mikill er Drottinn langt út fyrir landamæri Ísraels.``

6   Sonurinn skal heiðra föður sinn og þrællinn húsbónda sinn. En sé ég nú faðir, hvar er þá heiðurinn sem mér ber, og sé ég húsbóndi, hvar er þá lotningin sem mér ber? _ segir Drottinn allsherjar við yður, þér prestar, sem óvirðið nafn mitt. Þér spyrjið: ,,Með hverju óvirðum vér nafn þitt?``

7   Þér berið fram óhreina fæðu á altari mitt. Og enn getið þér spurt: ,,Með hverju ósæmum vér þig?`` þar sem þér þó segið: ,,Borð Drottins er lítils metandi!``

8   Og þegar þér færið fram blinda skepnu til fórnar, þá kallið þér það ekki saka, og þegar þér færið fram halta eða sjúka skepnu, þá kallið þér það ekki saka. Fær landstjóra þínum það, vit hvort honum geðjast þá vel að þér eða hvort hann tekur þér vel! _ segir Drottinn allsherjar.

9   Og nú, blíðkið Guð, til þess að hann sýni oss líknsemi. Yður er um þetta að kenna. Getur hann þá tekið nokkrum yðar vel? _ segir Drottinn allsherjar.

10  Sæmra væri, að einhver yðar lokaði musterisdyrunum, svo að þér tendruðuð ekki eld til ónýtis á altari mínu. Ég hefi enga velþóknun á yður _ segir Drottinn allsherjar, og ég girnist enga fórnargjöf af yðar hendi.

11  Frá upprás sólar allt til niðurgöngu hennar er nafn mitt mikið meðal þjóðanna, og alls staðar er nafni mínu fórnað reykelsi og hreinni matfórn, því að nafn mitt er mikið meðal þjóðanna _ segir Drottinn allsherjar.

12  En þér vanhelgið það, með því að þér segið: ,,Borð Drottins er óhreint, og það sem af því fellur oss til fæðslu, er einskis vert.``

13  Og þér segið: ,,Sjá, hvílík fyrirhöfn!`` og fyrirlítið það, _ segir Drottinn allsherjar _, og þér færið fram það sem rænt er og það sem halt er og það sem sjúkt er og færið það í fórn. Ætti ég að girnast slíkt af yðar hendi? _ segir Drottinn.

14  Bölvaðir veri þeir svikarar, er eiga hvatan fénað í hjörð sinni og gjöra heit, en fórna síðan Drottni gölluðu berfé! Því að ég er mikill konungur, _ segir Drottinn allsherjar _, og menn óttast nafn mitt meðal heiðingjanna.


Sakaría 14
   (Zechariah 14)  
 Choose Book & Chapter    Malakí 2
(Malachi 2)   

Icelandic is spoken by 247,600 people: 230,000 in Iceland, 9,700 in USA, 7,900 in Canada.

Icelandic Bible courtesy of Unbound Bible.


Licensed to Jesus Army. All Rights reserved. (Script Ver 2.0.2)
© 2002-2012. Powered by BibleDatabase with enhancements from the Jesus Army