Icelandic, Fyrsta bók Móse 2 (Genesis 2)1 Þannig algjörðist himinn og jörð og öll þeirra prýði.
2 Guð lauk á hinum sjöunda degi verki sÃnu, er hann hafði gjört, og hvÃldist hinn sjöunda dag af öllu verki sÃnu, er hann hafði gjört.
3 Og Guð blessaði hinn sjöunda dag og helgaði hann, þvà að á honum hvÃldist Guð af verki sÃnu, sem hann hafði skapað og gjört.
4 Þetta er sagan um uppruna himins og jarðar, er þau voru sköpuð.
5 Þegar Drottinn Guð gjörði jörðina og himininn, var enn alls enginn runnur merkurinnar til á jörðinni, og engar jurtir spruttu enn á mörkinni, þvà að Drottinn Guð hafði ekki enn látið rigna á jörðina og engir menn voru til þess að yrkja hana,
6 en þoku lagði upp af jörðinni, og vökvaði hún allt yfirborð jarðarinnar.
7 Þá myndaði Drottinn Guð manninn af leiri jarðar og blés lÃfsanda à nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál.
8 Drottinn Guð plantaði aldingarð à Eden langt austur frá og setti þar manninn, sem hann hafði myndað.
9 Og Drottinn Guð lét upp vaxa af jörðinni alls konar tré, sem voru girnileg á að lÃta og góð að eta af, og lÃfsins tré à miðjum aldingarðinum og skilningstréð góðs og ills.
10 Fljót rann frá Eden til að vökva aldingarðinn, og þaðan kvÃslaðist það og varð að fjórum stórám.
11 Hin fyrsta heitir PÃson; hún fellur um allt landið HavÃla, þar sem gullið fæst.
12 Og gull lands þess er gott. Þar fæst bedolakharpeis og sjóamsteinar.
13 Önnur stóráin heitir GÃhon. Hún fellur um allt Kúsland.
14 Þriðja stóráin heitir KÃddekel. Hún fellur fyrir vestan AssýrÃu. Fjórða stóráin er Efrat.
15 Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann à aldingarðinn Eden til að yrkja hann og gæta hans.
16 Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: ,,Af öllum trjám à aldingarðinum máttu eta eftir vild,
17 en af skilningstrénu góðs og ills mátt þú ekki eta, þvà að jafnskjótt og þú etur af þvÃ, skalt þú vissulega deyja.``
18 Drottinn Guð sagði: ,,Eigi er það gott, að maðurinn sé einsamall. Ég vil gjöra honum meðhjálp við hans hæfi.``
19 Þá myndaði Drottinn Guð af jörðinni öll dýr merkurinnar og alla fugla loftsins og lét þau koma fyrir manninn til þess að sjá, hvað hann nefndi þau. Og hvert það heiti, sem maðurinn gæfi hinum lifandi skepnum, skyldi vera nafn þeirra.
20 Og maðurinn gaf nafn öllum fénaðinum og fuglum loftsins og öllum dýrum merkurinnar. En meðhjálp fyrir mann fann hann enga við sitt hæfi.
21 Þá lét Drottinn Guð fastan svefn falla á manninn. Og er hann var sofnaður, tók hann eitt af rifjum hans og fyllti aftur með holdi.
22 Og Drottinn Guð myndaði konu af rifinu, er hann hafði tekið úr manninum, og leiddi hana til mannsins.
23 Þá sagði maðurinn: ,,Þetta er loks bein af mÃnum beinum og hold af mÃnu holdi. Hún skal karlynja kallast, af þvà að hún er af karlmanni tekin.``
24 Þess vegna yfirgefur maður föður sinn og móður sÃna og býr við eiginkonu sÃna, svo að þau verði eitt hold.
25 Og þau voru bæði nakin, maðurinn og kona hans, og blygðuðust sÃn ekki.
|